Síðasti dagur sem ógift kona:)

Þá er kjóllinn kominn í hús og ég get ekki annað en dáðst af honum. Hann er svo ofboðslega flottur. Fórum á æfingu í kirkjunni í gær það var mjög gaman Bolli prestur er svo mikil snilld hann er svo hress og skemmtilegur:) Allir sem koma að athöfninni voru mættir á svæðið og skemmtu sér vel.

Nú sit ég við eldhúsborðið drekk kaffi og blogga einhverja vitleysu:) Ég er búin að vera hugsa undanfarna daga hvað ef ég dett og kjólinn verður blautur og skítugur rétt fyrir athöfn, ef ég dett og fótbrotna og í staðinn fyrir að vera í krirkjunni klukkan þrjú verð ég uppá slysó, ef ég dett nú kannski bara inn kirkjugólfið, ef ég stíg á kjólinn og ríf hann....ef ef ef ef ef ef ef ef ef ......

En alla vega í kvöld förum við og skreytum salinn og við erm svo einstaklega heppin að eiga góða að sem eru til í að hjálpa til, þannig að það verður margt um manninn í salnum:)

En allavega þá vona ég að þið hafið það sem best og haldið áfram að vera dugleg að kvitta:)


Afmælisdagur einkadótturinnar...

Á morgun, mánudaginn 27. okt á hún dóttir mín 11 ára afmæli. Að venju verður mikið um hátíðarhöld því kl 14 mætir bekkurinn í bekkjarpartý og svo klukkan 17 koma svona þeir nánustu í kaffisopa:)

En almáttugur hvað mér finnst samt stutt síðan ég var með hana litla. En tíminn líður sem betur fer:)

Svo á laugardaginn rennur stóra stundin upp. Það er allt að verða klárt og mætti ætla að um kaffileiti á laugardaginn værum við Friðgeir orðin hjón. Nema að hann hætti við kall álkanBlush.... Næstu dagar fara í ýmiskonar reddingar, vax, neglur, fund í salnum, skipurleggja matseðil fyrir veisluna og margt fleira. Þar sem efnahagurinn er eins og hann er ætlum við einungis að hafa freyðivín til að skála og sleppa áfengi með matnum:) Enda höfum við ekki gott af því að þamba of mikið áfengi því fyrir suma er áfengi böl Whistling

Jæja elskurnar best að halda áfram að baka fyrir prinsessuna. Já og Unnur mín til hamingju með afmælið í dagKissing

Verið dugleg að kvitta:)


Helga Jóna og Viktor Ágúst.

Helga Jóna og viktor Ágúst Mér finnst þetta svo falleg mynd.


Jahérna hér...

... maður uppsker eins og sáð er þó svo að maður hafi ekki sáð fræunum sjálfur.
mbl.is Rekin úr búð í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HJÁLP

Okkur Friðgeiri langar svo að hafa einnota myndavélar á hverju borði í brúðkaupinu. Við erum búin að leita í Bónus og krónunni en þeir eru hættir að selja þær. Við týmum ekki að kaupa einnota vélar í kodak eða Pixlar fyrir 1790kr....... Lái okkur hver sem vill.

Hafið þið einhverja hugmynd um hvar ég gæti keypt þetta???? Mig vantar sko 15stk...

Með von um hjálp

Sibba


Gæsun númer tvö

Í gær morgun kom Rósa systir til að föndra með okkur Helgu Jónu. Það var svo gaman að föndra fyrir jólin og ræða málin (allt nema kreppuna) skipurleggja brúðkaupið sem er nú bara eftir þrjár vikur:) Um klukkan fimm sagði Rósa mér að fara í spari föt því að ég yrði sótt klukkan sex og að Helga Jóna yrði hjá henni um nóttinaErrm Þá grunaði mig strax að stelpurnar í vinnunni væru að plotta eitthvað. Á slaginu sex kom geðveikt flottur bíll og sótti mig. Mér leist nú ekkert rosalega vel á bílstjórann hann var með perra leðurhattFootinMouth og keyrði mig á Goldfingers, þar fór ég útúr bílnum og beið alltaf eftir að stelpurnar kæmu út en nei nei þarna stóð ég bara og spurði bílstjórann hvað ég ætti að gera, hann sagði mér að honum hefði bara verið sagt að keyra mig þangaðhheheheheheheh svo hló hann og sagði mér að fara aftur inní bílW00t Bara grín. Svo keyrði hann með mig einhvern rúnt sem endaði svo heima hjá Unni. Þar stóðu þær allar vinkonur mínar úr vinnunni Ásdís, Ragna, Carmen, Eva, Díjana, Unnur, Hanný, Heiða, Laufey, Elva, Guðbjörg, Björk, Lilja og Hófý (Það vantaði Kristínu því hún er í útlöndum) og skáluðu í einhverjum bleikum góðum drykk:) ohhhh þetta var æði. Svo átti ég nú að elda úr hinum ýmsu tegundum af matSick En það var nú bara grínCoolsjúkkett en allavega fengum við mjög góðan mat sem ég veit ekki alveg hvaðan var. Stelpurnar voru búnar undirbúa rosalega skemmtilegan leik sem auðvitað mitt lið vannInLoveLoLRagna tapsára óheppin að vera ekki í mínu liðiWizardWhistling Kvöldið var tær snilld ég fékk Hjónabands survivor kitWink Bali sem innihélt allt sem gott hjónaband þarf á að halda sem er m.a. Klósettbursti, tannbursti, kampavínsglös, gluggaskafa, orkudrykkir svo eitthvað sé nefnt. Þetta voru yfir þrjátíu hlutirHalo Svo gáfu þær mer svo ofsalega fallegann engil sem passar mig í lífinu. Þetta var rosalega gaman. Takk stelpur mínar fyrir allt þið eruð æði. Það eru nú ekki margir sem fá tvær gæsanir.

Einhver mundi líkja þessu við guðlast..

..

Þetta er nýr texti við lagið söknuð með Villa Vil

  

Mér finnst ég varla heill né hálfur maður Og heldur blankur, því er verr Ef væri aur hjá mér, væri ég glaður Betur settur en ég er

 

Eitt sinn verða allir menn að borga

Eftir bjartan daginn kemur nótt.

Ég harma það, en samt verð ég að segja,

að lánið fellur allt of fljótt.

 

Við gátum spreðað, gengið um,

gleymt okkur í búðunum.

Engin svör eru við stjórnarráð

Gengið saman hönd í hönd,

Saman flogið niður á strönd.

Fundið stað, sameinað beggja lán.

 

Horfið er nú hlutabréf og lánsfé

Í veski mínu hefur eymdin völd

Í dag ræður bara sultarólin

Nú einn ég sit um skuldavönd

 

Eitt sinn verða allir menn að borga

Eftir bjartan daginn kemur nótt.

Ég harma það, en samt verð ég að segja,

að lánið fellur allt of fljótt.

 

Ég horfi yfir bankann minn

Hugsi hvort hann hleypi mér inn

Ég alltaf gat treyst á þig

Í að fjármagna mig

Ég reyndar skulda allstaðar

Þá napurt er, það næðir hér

og nístir mig.

 

Nýji texti við ísland er land þítt

 

Ísland var land mitt, ég aldrei því gleymi, Ísland í gjaldþroti sekkur í sæ, íslensku krónun´í banka ei geymi við íslenska hagkerfið segi ég bæ, Ísland í erfiðum tímum nú stendur Íslenska stjórnin hún failar margfallt Íslenski seðillinn er löngu brenndur Ísland er landið sem tók af mér allt

  

 


Skemmtum okkur:)

Ég nenni ekki að skrifa um kreppu og krepputal nema það að ég er alveg viss um að það er hægt að tala upp kreppu því meira sem er talað um hana því meira er gert úr henni. Ég er ekki að meina að það eigi að loka augunum fyrir erfiðum tímum en bara að anda inn og út og taka bara einn dag í einu.

 Síðasta laugardag var prinsinn í Hagaselinu skírður og fékk það fallega nafn Viktor Ágúst ég var reyndar búin að spá nafninu Alexander ÁgústBlush En nafnið sem hann fékk er mjög fallegt. Það var skírt heima hjá Tengdó og veisla á eftir sem tókst mjög vel.

Annars er bara lítið að frétta þannig sko, það styttist í brúðkaupið og spennandi dagar framundan þannig að það er bara skemmtileg heit á næstunni:)

Ég vona að þig hafið það sem best..

Verið dugleg að kvitta:)


Gæsunin mín:)

Á laugardaginn vakti Friðgeir mig klukkan átta með morgunkaffi, sem gerist nú alveg stundum þannig að mér fannst það ekkert óvenjulegt. En svo uppúr hálf tíu hringdi dyrabjallan og ég ennþá á náttkjólnum og ekki einusinni búin að bursta tennurnar en allavega birtist Svanberg( mágur Rósu sys). Hann sagði mér að vera fljót að klæða mig í þægileg föt. Hann afhenti mér svuntu, viskustykki, sóp, pottaleppa og geðveikt flotta kórónu:) þetta átti ég að klæða mig í og setja viskustykkið á öxlina. Hann keyrði mig í Baðhúsið og þar átti ég að kynna mig sem gæs sem var alveg óþarfi því að það var alveg greinilegt hahahhahahah. Þarna fékk ég yndislegt fóta dekur. Sunna sys sótti mig eftir dekrið og batt fyrir augun á mérUndecided og keyði af stað, ég vissi ekkert hvert ég var að fara og grunaði ekki neitt.  Útúr bílnum og jájá látin labba hellings leið með bundið fyrir augun ég var algjörlega grunlaus en guð hvað þetta var óþægilegt. Loksins komumst við á áfangastað inní stofu til Rósu sys þar sem systurnar,spesíurnar(Ebeta, Lísa, Anna Soffía, Erla Anna), Helga Hrönn og Beta tóku á móti mér með óvæntu(sörpræs) hrópum heheheheh freyðivíni og bröns, algjört æði. Ég fékk meira segja typpa köku sem bragðaðist alveg dásamlegaW00t Þar var ég förðuð og mikið hlegið og talað. Frá Rósu fórum við i keiluhöllina í diskókeilu og spil sem ég man ekki alveg hvað heitir held samt að það heiti þythokki. Settumst svo á barinn og drukkum hvítvín og þessháttar:):O) svo fyrir utan keiluhöllina kvöddu allar stelpurnar mig nema systur mínar sem skuttluðu mér heim og þökkuðu fyrir skemmtielgan dag.Frown Ég hef aldrei upplifað þessa tilfinningu áður eins og ég ætti enga vini eheheheh. Ég lagðist bara uppí rúm þegar heim var komið og hugsaði með mér að þetta væri nú ekki líkt vinkonum mínum að gera svona lagað. Eftir smá stund komu systurnar svo aftur skelli hlæjandi og sóttu mig afturBlush hehe þá var keyrt útúr bænum og aftur var bundið fyrir augun á mér rétt áður en við komum á áfangastað og svo labbaði ég inní hús og trefillinn tekin niður og mér sagt að labba inní stofu ég var semsagt í sumarbústað. að opnaði ég hurðina og fram stukku spesírunar mínar og Helga Hrönn ohhh hehahahahhahahahah þvílík hamingja ohhh þetta var æði. Já ekki má gleyma leynigestinum BlushWhistling

Þær grilluðu og gerðu allt svo kósý, svo var drukkið og ég fékk gjafakörfu sem kemur sér að góðum notum og svo alveg ofsalega fallega styttu með kertastjaka sem búð var að skrifa á nöfnin okkar og brúðkaupsdag frá systrum mínum. Kvöldið var alveg yndiselgt. Helga Hrönn fór reyndar um kvöldið og gisti semsagt ekki með okkur en almáttugur að var svo gaman að að liggur við að ég öfundi Friðgeir að eiga þetta eftirBlush neinei grín. Svo á sunnudeginum þegar ég kom á fætur sögðu stelpurnar mér að Friðgeir væri á leiðinni og þær hefðu reddað fríi í vinnunni fyrir mig í dag(mánudag) og við ættum að vera eina nótt saman í bústaðnum ohhh við höfðum svo gott af því, þetta var bara æðislegt. stelpur mínar takk æðislega fyrir okkur og mig ég er orðlaus af þakklæti.

Endielga skrifið ef ég hef gleymt einhverju:)

Takk takk takk allarKissing


Sibba seinheppna.

Ég verð að segja ykkur eina skondna söguGrin  Eins og flest ykkar vita vinn ég sem matráður á leikskóla, ég þurfti ásamt fleiri matráðum að mæta á smá svona spjall fund á einum leikskóla og fundurinn/samkoman byrjaði á að matráðurinn á leikskólanum(sem við hittumst á) sýndi okkur eldhúsið sitt og vinnu aðstöðuna. Við vorum líklega svona fimmtán talsins:) Þarna var maður sem ég hafði aldrei séð áður, hann labbaði þarna um og sagði svo alltí einu nei Sibba sjáðu þarna, þetta er nú aldeilis fínt það væri nú munur ef við værum með svona fínt, ég saði bara "já segðu" og hugsaði og hugsaði hvaðan ég ætti að þekkja þennan mann og hvenar hann hafði séð eldhúsið mittGasp þar sem hann hélt áfram að nefna nafnið mitt og segja eitthvað svona var ég farin að hallast að því að ég þekkti hann svaraði ég nú alltaf aumingja manninum. Ég er svo ómannglögg þannig að ég bara tók sjensinn að hann þekkti migWoundering hahahhahahahahh svo var okkur boðið inná kaffi stofu í kaffi og með því. Ég sat í mestu makindum og drakk kaffi þegar hann segir í hinum endanum á kaffistofunni æ sibba mín réttu mér nú mjólkina, ég bara what hann er nú bara að djóka hahhahah þá teygði konan sem sat á móti honum sig í mjólkina og rétti honumheheheheheheheh þetta var semsagt aðstoðarkonana hans sem heitir því fallega nafni SibbaInLove  Ég varð eins og fífl og skelli hló inní mérBlush

Góða helgi elskurnar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband