Sibba seinheppna.

Ég verð að segja ykkur eina skondna söguGrin  Eins og flest ykkar vita vinn ég sem matráður á leikskóla, ég þurfti ásamt fleiri matráðum að mæta á smá svona spjall fund á einum leikskóla og fundurinn/samkoman byrjaði á að matráðurinn á leikskólanum(sem við hittumst á) sýndi okkur eldhúsið sitt og vinnu aðstöðuna. Við vorum líklega svona fimmtán talsins:) Þarna var maður sem ég hafði aldrei séð áður, hann labbaði þarna um og sagði svo alltí einu nei Sibba sjáðu þarna, þetta er nú aldeilis fínt það væri nú munur ef við værum með svona fínt, ég saði bara "já segðu" og hugsaði og hugsaði hvaðan ég ætti að þekkja þennan mann og hvenar hann hafði séð eldhúsið mittGasp þar sem hann hélt áfram að nefna nafnið mitt og segja eitthvað svona var ég farin að hallast að því að ég þekkti hann svaraði ég nú alltaf aumingja manninum. Ég er svo ómannglögg þannig að ég bara tók sjensinn að hann þekkti migWoundering hahahhahahahahh svo var okkur boðið inná kaffi stofu í kaffi og með því. Ég sat í mestu makindum og drakk kaffi þegar hann segir í hinum endanum á kaffistofunni æ sibba mín réttu mér nú mjólkina, ég bara what hann er nú bara að djóka hahhahah þá teygði konan sem sat á móti honum sig í mjólkina og rétti honumheheheheheheheh þetta var semsagt aðstoðarkonana hans sem heitir því fallega nafni SibbaInLove  Ég varð eins og fífl og skelli hló inní mérBlush

Góða helgi elskurnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Sibba mín, ég er þér hjartanlega sammála með síðustu mánudaga, þeir hafa verið  "déskoti " leiðinlegir og bara af því að þig vantaði í vinnuna, það er frábært að hafa þig og geta spjallað um allt og ekkert.  Skondin sagan af manninum og hinni Sibbunni.  Hlakka til að hitta þig eftir helgi knús og koss Þurý

Þuríður Ágústa Gestsdóttir (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 22:23

2 Smámynd: Erla Stefanía Magnúsdóttir

Ha ha þú hefur líklega verið á Rjúpnahæð?

kær kveðja frá Köben

Erla Stefanía Magnúsdóttir, 27.9.2008 kl. 19:18

3 identicon

hæhæ Dísa hér var að sjá þetta blogg, hér á ég eftir að fylgjast með. bið að heisla stóra frænd

Dísa og bumbubúi (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband