Er eitthvað að frétta?

Það er nú bara alltaf það sama á þessum bæ. Helga Jóna flakkar á milli þessa dagana, pabbi hennar er ennþá í veikindarfríi svo að hún er búin að vera mikið með honum á meðan ég er í vinnunniGrin

Við pössuðum Mikael Loga í gær á meðan Hafdís og Pálmi fóru á Clapton tónleikana ohhh það er svo gaman að passa þetta yndi. Hann er svo skemmtilegt barn. Svo í dag þá var haldið uppá eins árs afælið hans á ellefu ára brúðkaupsafmælisdegi þeirra hjóna, sem var bara gaman en hann hafði nú lítinn áhuga á að opna pakkana sína svo að Helga Jóna og Rósa María hjálpuðu honum aðeins við þaðWink

Á morgun er svo fimm ára afmæli hjá Ísabellu Eir þannig að það er nóg að gera á þessu heimili. Helga Jóna fer svo með Pabba sínum og Ástu í sumarbústað annaðkvöld og gistir í tvær nætur. Þannig að ég verð bara að dúlla mér og hef það gott.

Knús á ykkur og verið dugleg að kvitta:)


Bloggfærslur 9. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband