24.12.2008 | 10:52
Jól fyrir jólabörn:)
Elskulega fjölskylda mín og vinir ég vil óska ykkur gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Með von um góða heilsu og jákvæðni á komandi ári. Takk fyrir allan stuðninginn á árinu og yndislega samveru í brúðkaupinu okkar
Jólakveðja Sibba og fjölskylda í Sibbukoti
Athugasemdir
Kæra fjölskylda
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum allar yndislegu samverustundirnar á árinu sem er að líða, sjáumst vonandi fljótlega á nýju ári.
Hafið það sem allra best.
knús og kossar
Helga Hrönn og strákarnir
Helga Hrönn (IP-tala skráð) 25.12.2008 kl. 12:45
Elsku Sibba mín, Takk fyrir fallega jólakortið. Jú það er eitt sem þið getið gert fyrir okkur... vera hamingjusöm og góð hvort við annað, en það eruð þið nú þegar, svo ég rukka bara eitt knús næst þegar við hittumst. Risaknús, beint yfir netið og bestu kveðjur!
Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 28.12.2008 kl. 07:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.