Hvítasunna:)

Í gærkvöldi bauð ég systrum mínum í mat. Sunna yngsta systir mín komst reyndar ekki því hún var að vinna. En Hafdís og Rósa mættu í Sibbukot og fengu sér fylltan hrygg, kartöflugratín og allt sem því fylgdi. Hvítvín til að sötra með og bailys, kaffi og heita eplaköku með rjóma á eftir. Voða gott svo var hleigið og kjaftað til miðnættis hehhe. Hvað er betra en að eiga notalega stund með systrum sínumGrin  Ekki spillir að þær færðu mér svo ofsalega fallega gjöf og litla bók sem heitir Minnisbók handa yndislegri systur. Hún inniheldur fullt af fallegum orðum.

Í dag ætlum við að fara með tjaldvagnin útá land og skoða hvernig hann kemur undan vetri og gista allavega eina nóttCool Vona að sólarskvísan mæti á svæðið og heiðri okkur með nærveru sinniHeart

Jæja ég vona að þið hafið það sem best.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Oh hvað hefur verið næs hjá ykkur systrunum.......næstum því öllum :)

Vonandi fengið þið gott veður í fyrstu útilegunni ......

kveðja

Helga Hrönn

Helga Hrönn (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 00:32

2 identicon

Þú verður að segja okkur aðeins meira frá þessum fyllta hrygg... 

Hjörtur Hjartarson (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband