Gaman gaman.

Ég fór á Jet black Joe tónleikana í Höllinni í gær. Það var geðveikt gaman. Fyrst kom  upphitunar hljómsveit sem heitir Breath svo ótrúlega góð söngkona í þeirri hljómsveit þau tóku cover lög ótrúlega flott söngrödd þar á ferð. En svo kom Páll Rósinkrans ohhhhhhhhhhhhhhh eruð þið að djóka með kynþokkann, hann söng nokkur trúarlög sem var bara gæsahúð útí gegn. Hann er svo geggjaður söngvari. Svo skellti hann sér í leðurbuxurnar og jet black Joe meðlimir stigu á svið og gospelkórinn var með þeim líka. Mér til mikillar gleði þá voru þetta ekki standandi tónleikar þannig að ég sá á sviðið allann tímannHalo En það var fólk þarna sem var nú ekkert að fíla að vera hlusta á JBJ sitjandiWhistlingWink sem ég skil reyndar mjög vel. Það var rosalega gaman og svo hitti ég svo skemmtilegt fólk. Eyþór Ingi var þarna nokkrum sætaröðum fyrir framan mig og ég var að vona allann tímann að hann færi uppá svið og tæki eitt lag með Palla en svo var því miður ekki. Hann kunni sko greinilega öll lögin (slamm slamm)Smile Takk Sunna mín fyrir æðislegt kvöld og takk fyrir að draga mig útKissing er ekki beint duglegust að blanda geði við fólk þessa dagana.

Í dag fórum við Helga  Jóna svo á opið hús í leikskólanum mínum (vinnunni minni) löbbuðum uppí hvamm og gróðursettum tré og svo var drukkið heitt súkkulaði þegar við komum til baka. Eftir það fórum við svo á fjölskyldudaginn hjá stöð tvö í húsdýragarðinum. Stoppuðum stutt það var mjöööög mikið af fólki. Svo erum við mæðgur að fara passa Mikael Loga í kvöld heima hjá Hafdísi sys.

Knús á alla og verið dugleg að kvitta og þú líka SigurveigSideways


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Gaman að sjá þig í gær!  Já, þetta voru fínustu tónleikar.. en þú varst greinilega í betra sæti en ég

Áslaug Helga Hálfdánardóttir, 17.5.2008 kl. 19:46

2 Smámynd: Sigurbjörg Guðleif

Já hún er voða  barnakerling. Enda bíður hún eftir systkyni og ég því miður þarf að hafa doldið mikið fyrir því en vonum að það komi:)  Þið eruð velkomin til okkar hvenar sem er. Gulla þætti örugglega ekkert leiðinlegt að róta í Bratz dótinu hennar Helgu Jónu hahahahahaha

Sigurbjörg Guðleif, 17.5.2008 kl. 21:05

3 identicon

Hæ Sibba mín og takk fyrir síðast,og takk æðislega fyrir að passa Mikael Loga

Verst að hafa ekki náð neitt að spjalla, ekki einu sinni drekka eitt pepsi max saman   En við bara bætum úr því næst.

      þín stóra syss.

Lilja Hafdís (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 15:05

4 identicon

Maður þorir ekki öðru en að kvitta   kv.Sigurveig

Sigurveig (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 21:47

5 identicon

Takk fyrir skemmtileget kvöld krúsla, þetta var stuð ;) Eyþór fór á kostum slammandi í sætinu hahaha..... fyndinn líka konan sem datt næstum því alltaf á mig þegar hún labbaði framhjá mér hahahahaha

Love ya sys, hlakka til að sjá þig í kvöld...

Sunna Dögg (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 10:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband