26.10.2008 | 23:06
Afmælisdagur einkadótturinnar...
Á morgun, mánudaginn 27. okt á hún dóttir mín 11 ára afmæli. Að venju verður mikið um hátíðarhöld því kl 14 mætir bekkurinn í bekkjarpartý og svo klukkan 17 koma svona þeir nánustu í kaffisopa:)
En almáttugur hvað mér finnst samt stutt síðan ég var með hana litla. En tíminn líður sem betur fer:)
Svo á laugardaginn rennur stóra stundin upp. Það er allt að verða klárt og mætti ætla að um kaffileiti á laugardaginn værum við Friðgeir orðin hjón. Nema að hann hætti við kall álkan.... Næstu dagar fara í ýmiskonar reddingar, vax, neglur, fund í salnum, skipurleggja matseðil fyrir veisluna og margt fleira. Þar sem efnahagurinn er eins og hann er ætlum við einungis að hafa freyðivín til að skála og sleppa áfengi með matnum:) Enda höfum við ekki gott af því að þamba of mikið áfengi því fyrir suma er áfengi böl
Jæja elskurnar best að halda áfram að baka fyrir prinsessuna. Já og Unnur mín til hamingju með afmælið í dag
Verið dugleg að kvitta:)
Athugasemdir
Góðan daginn. Innilegar hamingjuóskir með 11 ára stúlkuna Já, það er rétt, tíminn líður aldeilis, það er svo stutt síðan þær frænkurnar voru að skottast saman í Breiðholtinu Áður en við vitum af eru það þær sem ganga kannski kirkjugólfið En enn og aftur, til hamingju með daginn. ÉG hef samband þegar ég veit nánar hvort við komumst, en Inga Lilja sefur enn þannig að ég veit ekki hvernig staðan á henni er.
Knús og kossar
Lísa og fjölskylda Skaganum
Lísa og fjölskylda (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 08:16
Hæ elskan. innilegar hamingjuóskir með afmælisdag einkadótturinnar :D ekkert smá stutt síðan hún fæddist þessi elska. hlakka til að knúsa ykkur í dag og get ekki beðið eftir laugardeginum!!
knús og kossar
Rósa
Rósa María (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 10:28
Til hamingju með dóttirina
Landi, 27.10.2008 kl. 12:28
Takk fyrir þetta elskurnar:)
Sigurbjörg Guðleif, 27.10.2008 kl. 15:04
Innilega til hamingju með stelpuna............já það er sko rétt hjá þér tíminn líður sko hratt. Finnst nú ekki svo langt síðan að við vorum á harða spretti úr fjallinu á króknum og í felur.....veist hvað ég á við.......hehehehehe........litlu fiktararnir...:)
Gvöð get ekki beðið eftir laugardeginu.........hlakka svo geggjað mikið til :)
gangi ykkur vel með lokaundirbúninginn......veist hvar ég er!
kveðja
Helga Hrönn
Helga , 27.10.2008 kl. 17:14
Já eitt enn.....................bara gott mál að skála í freyðivín........maður á að fara eftir því hvað maður vill sjálfur og þarna er ég sko sammála þér.
knús og kossar
Hrönnslan
Helga , 27.10.2008 kl. 17:15
Til hamingju með prinsessuna,vildi að ég hefði getað verið með,,en vinnan kallar og þarf að taka frí um helgina ;-) ekki allt hægt....en ég var með ykkur í huganum já get ekki beðið eftir að sjá þig labba inn kirjugólfið þú verður sko laaang fallegust knús knús
Lilja Hafdís (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 20:52
Hæ elskurnar já Helga Hrönn ég veit sko alveg hvað þú meinar hehehehheheh
Já Hafdís þú varst bara heppin:)
Sigurbjörg Guðleif, 27.10.2008 kl. 20:57
Mátti til með að kvitta er reglulegur gestur á síðunni þinni;) ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt, gangi ykkur vel um helgina
kveðja frá neskaupstað
Rósa Dögg (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 17:04
til hamingju með dótturinna og hlakka til laugardagsins
Dísa og bumbubúi (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 22:49
2 dagar!!!!!!!!!!!!!
Lísa frænka (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 20:51
1 dagur !!!!!!
Lísa frænka (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 08:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.