31.10.2008 | 10:37
Síðasti dagur sem ógift kona:)
Þá er kjóllinn kominn í hús og ég get ekki annað en dáðst af honum. Hann er svo ofboðslega flottur. Fórum á æfingu í kirkjunni í gær það var mjög gaman Bolli prestur er svo mikil snilld hann er svo hress og skemmtilegur:) Allir sem koma að athöfninni voru mættir á svæðið og skemmtu sér vel.
Nú sit ég við eldhúsborðið drekk kaffi og blogga einhverja vitleysu:) Ég er búin að vera hugsa undanfarna daga hvað ef ég dett og kjólinn verður blautur og skítugur rétt fyrir athöfn, ef ég dett og fótbrotna og í staðinn fyrir að vera í krirkjunni klukkan þrjú verð ég uppá slysó, ef ég dett nú kannski bara inn kirkjugólfið, ef ég stíg á kjólinn og ríf hann....ef ef ef ef ef ef ef ef ef ......
En alla vega í kvöld förum við og skreytum salinn og við erm svo einstaklega heppin að eiga góða að sem eru til í að hjálpa til, þannig að það verður margt um manninn í salnum:)
En allavega þá vona ég að þið hafið það sem best og haldið áfram að vera dugleg að kvitta:)
Athugasemdir
Hæ hæ
Jiiii hvað ég kannast við svona EF hugsanir en ég er alveg handviss um að þetta fer sko allt vel. Ég hlakka SVOOO til að sjá þig í kjólnum og að sjálfsögðu ykkur öll Gangi ykkur rosavel í undirbúningnum - ég verð víst á kvöldvakt
Knús og kossar héðan í rigningunni á Akranesi.
Kveðja Lísa frænka
Lísa (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 14:10
Gangi ykkur allt í haginn, ..... break a leg?....
Þórður Helgi Þórðarson, 31.10.2008 kl. 15:10
Hæ hæ
Megið þið eiga yndislegan dag á morgun og njótið hans í botn.
Kveðja Gunna Magga
Gunna Magga (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 15:20
Elsku Sibba og Friðgeir, innilega til hamingju með daginn og eigið frábæran dag í dag og alla aðra daga Þú ert svo frábær Sibba! Hlakka til að sjá myndir
Kærar kveðjur,
Sigurlaug og co
Sigurlaug Reynalds (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 22:11
Sæl og innilega til hamingju með þennan viðburð í lífi þínu.
"Held og lykke "eins og danirnir segja.
kær kveðja Erla Stefanía
Erla Stefanía Magnúsdóttir, 3.11.2008 kl. 07:13
Góðan dag gifta kona ;-) Takk kærlega fyrir síðast. Athöfnin var yndisleg, presturinn algjört gull Þú varst svooooo glæsileg, kjóllinn alveg meiriháttar flottur. Helga Jóna var algjör prinsessa og Friðgeir var að sjálfsögðu líka flottur. Maturinn var mjög góður og veislan bara æðisleg í alla staði. Þetta er dagur sem mun án efa veita þér/ykkur ljúfar minningar í framtíðinni. Ástarkveðja Lísa frænka
Lísa frænka (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 12:21
Frú Sigurbjörg
Innilega til hamingju með að vera orðin FRÚ. Þetta var í alla staði frábær dagur.....allt svo flott og heppnaðist mjög vel. En má til með að nefna það hvað þú átt frábæra og yndislega stelpu.....hún stóð sig svo vel ....svakalega flott hjá henni ræðan
Njótið hveitbrauðsdagana.....sjáumst vonandi fljótlega eftir þá :)
knús og kossar
kveðja
Helga Hrönn
p.s. ég mun hefna mín...............hehehehe.....smá grín........takk fyrir fallega orð
Helga , 3.11.2008 kl. 15:53
Hjartanlega til hamingju með giftinguna,megi Guð og gæfa fylgja ykkur.....
Kveðja
Landi, 3.11.2008 kl. 22:06
En og aftur til hamingju brúðhjón.
Takk fyrir æðislegan dag og leyfa mér að vera með
Dísa og Bumbubúin (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 12:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.