Jólin jólin.......

Mig langaði bara til að segja ykkur að ég var að setja inn nokkrar smáköku uppskriftir inná uppskriftarsíðuna mína blog.central.is/sibbu

Ég setti inn þrjár af mínum uppáhalds sem ég var að baka í dag:) en ætla að setja fleiri inn á næstunni.

Njótið vel:)


Ást er......

..Fagfólk lagði spurninguna fyrir hóp af 4 – 8 ára börnum, “Hvað þýðir Ást?”
Svörin voru fjölbreyttari og dýpri en nokkurn grunaði.  Bara snilld :) 


'Þegar amma mín fékk liðagigtina gat hún ekki

beygt sig niður til að lakka táneglurnar lengur.
Svo að Afi minn gerði það alltaf fyrir hana jafnvel

eftir að hendurnar hans fengu liðagigt líka. Það er Ást.'
Rebe
kka 8 ára




'Þegar einhver elskar þig, segja þeir nafnið þitt öðruvísi.
Þú bara veist að nafnið þitt er öruggt í munninum á þeim.'

Billy
4 ára




'Ást er þegar stelpa setur á sig ilmvatn og strákur setur á sig rakspíra

og þau fara út og lykta af hvort öðru.'
Karl
5 ára



'Ást er þegar þú ferð út að borða með einhverjum og hann gefur þér frönskurnar

sínar án þess að láta þig gefa sér nokkuð af þínum eigin.'
Chrissy
6 ára



Ást er það sem lætur þig brosa þegar þú ert þreytt.'
Terri
4 ára



'Ást er þegar Mamma gerir kaffi handa Pabba,og hún tekur sopa áður en hún gefur honum það til að vera viss um að bragðið sé í lagi.'
Danny
7 ára




'Ást er þegar þið kyssist öllum stundum. Síðan þegar þið eruð þreytt á að kyssast viljið þið enn vera saman og tala meira.
Mamma mín og Pabbi eru þannig. Það er ógeðslegt þegar þau kyssast'

Emily
8 ára



'Ást er það sem er með þér í stofunni á Jólunum ef þú stoppar að taka upp gjafirnar og hlustar.'  
Bobby
7 ára
(Vaá!)

'Ef þú vilt læra að elska meira skaltu byrja á vini sem þú hatar,'
Nikka
6 ára
(við þurfum nokkrar milljónir af Nikkum á þessa jörð)
 



'Ást er þegar þú segir strák að þér finnist skyrtan hans falleg,

og þá gengur hann í henni alla daga.'
Noelle
7 ára  




'Ást er eins og lítil gömul kona og lítill gamall maður sem eru

enn vinir jafnvel eftir að þau kynnast hvort öðru svo vel.'
Tommy
6 ára


'Þegar ég var með píanótónleikana mína, var ég á sviði og ég var hrædd.

Ég leit á allt fólkið sem horfði á mig og sá Pabba minn veifa og brosa.
Hann var sá eini sem gerði það. Ég var ekki hrædd lengur'
Cindy
8 ára




'Mamma mín elskar mig meira en nokkur annar.
Þú sérð engan annan kyssa mig góða nótt á kvöldin.'  

Clare
6 ára



'Ást er þegar Mamma gefur Pabba besta hlutann af kjúklingnum.'
Elaine - 5 ára




'Ást er þegar Mamma sér Pabba illa lyktandi og sveittan

og segir enn að hann sé myndarlegri en Robert Redford.'  
Chris
7 ára (aumingja mamman hefur greinilega aldrei séð Ragga Bjarna, það er sko sjarmi.is)



'Ást er þegar hvolpurinn þinn sleikir þig í framan

eftir að þú skildir hann eftir einan allan daginn.'
Mary Ann – 4 ára
 



'Ég veit að stóra systir mín elskar mig vegan þess hún gefur mér

öll gömlu fötin sín og verður að fara í búðina og kaupa ný.'
Lauren – 4 ára



'Þegar þú elskar einhvern, fara augnhárin upp og niður

og litlar stjörnur koma út úr þér.' (þvílík sýn)
Karen – 7 ára



'Þú ættir ekki að segja “Ég elska þig” nema þú meinir það.

En ef þú meinar það áttu að segja það oft.  Fólk gleymir.'
Jessica – 8 ára



Og að lokum:


4 ára gamall drengur átti gamlan herramann að nágranna sem hafði nýlega misst konuna sína.
Þegar hann sá gamla manninn gráta, fór litli drengurinn inn í garð herramannsins, klifraði upp í kjöltu hans og bara sat þar.


Þegar móðir hans spurði hann hvað hann hafði sagt við gamla manninn svaraði hann: “Ekkert. Ég bara hjálpaði honum að gráta”


Bloggiddíblogg

Er ekki komin tími á blogg frá sibbulínu?Errm

Ég er búin að vera veik í tæpar þrjár vikur með stíflaðar einnis og kinnholur, kvef og hitaSick. Alveg mín heppni að vera með 39stiga hita á brúðkaupsdaginn minn:) en ég skemmti mér vel og átti mjög yndiselgan dag. Við Friðgeir fórum í bústað í tæpa viku eftir brúðkaupið og ég lá veik allann tímann:( En ég er að lagast sem betur fer. Er að klára pensilín skammt númer tvö.

Ég er búin að skreyta fyrir jólin og á bara tréð eftir en það er nú ekki langt í að ég sæki það úr geymslunniBlush.

Ég er svo heppin að vera gift eðal manni. Honum finnst bara gaman að skreyta svona snemma og seigir að manni eigi að líða vel í skammdeginu, og mér líður best í jólaljósunum og kertaljósi:)

Þá er komið nóg frá mér í bili. Vona að þið hafið það sem best.

Munið að kvittaWhistling

 


Gullkorn dagsins...

Gullkorn dagsins


- Hefur þú nokkur tíma óskað þess að aðrir í fjölskyldunni vissu hversu vænt þér þykir um þá og hvað þeir eru þér mikils virði?  Farðu og segðu þeim það. -

engin vísa er of oft kveðinJoyful Tíminn sem fer í hönd er tími fjölskyldunnar....notið hann vel...Eigið góða helgi

hugs05



Loksins orðin frú:)

Takk allir fyrir fallegar kveðjur og þið sem voruð svo heppin að vera með okkur þennan dag takk kærlega fyrir okkur.

Ég var að setja inn myndir.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband