28.6.2008 | 09:42
28. Júní
Ég á afmæli í dag. Þegar ég á afmæli þá er ég prinsessa
Ég bakaði handa stelpunum mínum í vinnunni í gær. Svo er smá afmæliskaffi í dag Ég elska að eiga afmæli
Var vakin í morgun með afmælissöng og afmælispakka
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
21.6.2008 | 12:18
Góður föstudagur að baki.
Þann 18. júní voru tólf ár frá því að Lilja amma mín dó. Að því tilefni fórum ég, mamma, Hafdís sys, Alexander Jóhann og Mikael Logi upp á Hvanneyri í gær að leiðinu hennar og afa. Það var svo yndislegt veður. Inga systir hennar mömmu hitti okkur þar uppfrá og áttum við góða stund saman. Við kíktum svo í bústaðinn hennar í kaffi. Bústaðurinn hennar er algjörlega geggjaður og þau hjónin eru búin að gera svo mikið í honum. Þegar við komum svo aftur í höfðuðborgina um átta í gærkvöldi var Pálmi búinn að grilla og bauð okkur í mat og var því skálað í hvítvíni í lok æðislegs dags. Friðgeir kom og borðaði með okkur og skuttlaði mér og múttu svo heim um miðnætti. Takk æðislega fyrir góðan dag.
Af spánarskvísunni minni er allt gott að frétta hún fer til Rósu og þeirra í dag og skilst mér á þeim að hún ætli að gista þar í þjár nætur Það er bara æðislegt fyrir hana.
Vona að helgin verði ykkur góð. Knús og kram á ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.6.2008 | 12:44
Lítið að frétta.
Þá er Helga Jónan mín úti á Spáni með pabba sínum og fjölskyldu hans. Hún hringdi í mig fyrsta daginn og kvartaði undan peningaleysi Hún er svo skondin. Af okkur er voðalega lítið að frétta. Bara vinna og aftur vinna. Það styttist í að ég verði 33 ára
hehe doldið há tala
En allavega þá líður mér vel og það er það sem skiptir máli. Ég vona að þið njótið lífsins.
Knús og kram
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2008 | 11:51
Almáttugur minn.
![]() |
Hryggbrotnaði í rússíbana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2008 | 17:44
Hmmmmm..
![]() |
Gægjast gegnum föt farþega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2008 | 23:06
Eitthvað sem allir eru opinir fyrir? Hmmmmm
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.6.2008 | 10:33
Hvað er húmor???

![]() |
Lengi tekist á við húmorsleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1. ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ? Já Leifu ömmu minni Hún hét þessu fallega nafni Sigurbjörg Guðleif og var meira segja Guðjónsdóttir eins og ég:)
2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ? Á mánudaginn þegar ég rak hausinn í eitthvað drasl á tjaldvagninum hehe
3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ? Jájá svona þokkalega, get skrifað ágætlega ef ég vanda mig doldið.
5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ? Ég á eitt barn.
6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN ? Nei örugglega ekki.. Ég er ekki skemmtileg týpa
7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ ? Já frekar
8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ? Aldrei
9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? Kaffi
10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ? nauts
11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKA ? Nei langt frá því.
12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? Hjartanlega sammála Ásdísi en ég fæ mér ekki kurl bara stundum luxusdýfu.
13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ? Brosið og húmorinn. Ekki mikið fyrir húmorslaust fólk.
14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR VARALITUR ? Bleikur
15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ? Flest allt
16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ? Leifu ömmu minnar.
17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA ? Audda mar
18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ? Er í náttbuxum og á táslunum:).
19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ? Nýbakaður kanilsnúður
20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ? Bestu vinkonu mína þessa stundina sem er ég sjálf að lesa upphátt hehee
21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ? Bleikur
22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ? Bensínlykt, dekkjarlykt og fiskilyktin úti á eyri
23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ? Hann Friðgeir minn sem er í vinnunni
24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR ?Já ég elska hana:)
25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ? Fimleikar
26. ÞINN HÁRALITUR ? Músarbrúnn
27. AUGNLITUR ÞINN ? Brún og græn
28. NOTARÐU LINSLUR ? Nei en hef prófað það.
29. UPPÁHALDSMATUR ? Læri sem Friðgeir marinerar, það er sjúklega gott.
30. HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR? Góður endir
32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI ? Koss
33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ? Hmmmmmmmmmm engin einn
34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG BIRTA ? Það er spurning hvort einhver nenni þessu
35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ? Veit ekki
36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ? Morðingi án andlits, sænsk löggusaga
37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ? Einhver mynd af tréi. Motta frá Landsbankanum. Klassi.is
38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ? Allavega ekki trúðinn á rás 1
39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ? Hvorugt
40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ? Mineappolis held ég bara.
41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ? Einstaklega eiginleikalaus týpa
42. HVAR FÆDDISTU ? Á landspítalanum held ég.
43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ SJÁ ? Ég er forvitin um alla!