21.5.2008 | 20:30
Kann ekki gott að meta.
Í gærkvöldi ætlaði ég að sanna fyrir Friðgeiri að ég væri gott eiginkonu efni, fór með honum, Ingólfi og Gróu á U2/3D almáttugur sko ég er ekki U2 fan og mér fannst þetta sko ekkert skemmtilegt. Ef þetta hefðu verið tónleikar með Ragga Bjarna eða Á móti sól hefði ég örugglega fílað mig í botn. En Friðgeiri og þeim fannst þetta góð mynd/tónleikar svo að það er víst fyrir mestu Ég kann greinilega ekki gott að meta ehheheeheheh.
Jæja ég segi bara tutu fyrir morgundaginn og vona að við komumst áfram
Athugasemdir
andaðu léttar Sibbulina mín því mágur þinn og bróðir hans löbbuðu út í hléii þegar þeir fóru á myndina :) þú ert besta eiginkonuefni þrátt fyrir þetta :D:D knús og hlakka til að sjá þig á föstudaginn :) þín litla systir Rósa
Rósa María (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 01:56
Sjúkkett Takk stelpur mínar fyrir falleg orð. Rósa mín Pizza og rauðvín/hvítvín og föndur heheeheheheh með skemmtilegum stelpum. Hvað er betra
Sigurbjörg Guðleif, 22.5.2008 kl. 16:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.